föstudagur, september 02, 2005

Ragga, Nanna og Sigga:


www.evaoglotta.blogspot.com

miðvikudagur, ágúst 17, 2005

Þóra:
Jæja pjásur góðar, senn líður að menningarnótt. Af því tilefni verður haldinn Grettisgötugleðskapur fyrir pjásur, pjásumaka og góða pjásuvini. Með öðrum orðum þá ætlar "hópurinn" að hittast. Ég er að vinna til 6 í Kringlunni (þið sem farið að versla þar, endilega heilsið upp á mig ;)) og svo fljótlega eftir það mundi ég vilja hitta ykkur. Góður pjásuvinur stakk upp á því að við gæddum okkur saman að pizzu. Svo gætum við fengið okkur öl og hlustað á ljúfa tóna úr megagræjunum mínum. Og já, endilega komiði með tónlist með ykkur ef þið viljið. Hafði hugsað mér að þetta partý yrði ekkert rosa langt, bara svona til að koma hópnum saman því við mundum svo röllta niðrí bæ til að sjá menninguna. Það má auðvitað breyta því ef það verður rok og rigning.
Hvernig líst ykkur á þetta?
Hverjir eru game í pizzu?

Hlakka til að sjá ykkur ;)

sunnudagur, ágúst 07, 2005

Nanna:
Jæja, þá er pjásan komin heim á klakann og unir vel... Eða svona því sem næst, mætti vera betra veður. Já, heill mánuður og maður fer að sakna Íslands bara, þvílíkur aumingjaskapur. Hvað var ég að gera? Ég fór að verslaaa, datt í þaaaað og .. hmm.. fór smá í sólbaaað.. Ofsa kósí! Við Kris skelltum okkur í Disneyland um daginn, nú skokkum við um í Mikka Mús peysum í stíl... rosalegt! Disneyland er einn besti staður sem ég hef komið á, ótrúlega fallegt og mikið að sjá! Verð að segja að Space Mountain skarar fram úr hvað adrenalín kikk varðar. Þarna voru einnig mjög skemmtilegir bílar (svona eins og í fjölskyldugarðinum nema stærri) og eftirminnilegt hvað starfsmenn lögðu mikla áherslu á að ekki skyldi klessa á bílinn fyrir framan sig. Við gátum því miður ekki staðið við það. Ég skemmti mér dásamlega bak við stýrið, verð að segja það. Gamall afi og barnbarn í bílnum fyrir framan og virkilega fyndið að sjá hvernig svipbrigði afans breyttust eftir því sem árekstrunum fjölgaði. Fyrst svona brosandi og í endann pínu hræddur. Priceless! Ég keypti Fríðu kjól handa litlu frænku (Fríða og dýrið sko), og ohhh hvað það væri gaman að vera lítil stelpa aftur! Það var líka hægt að kaupa kjól á Þyrnirós, Öskubusku, Litlu hafmeyjuna (þegar hún er með fætur), Mjallhvíti og Tinkerbell úr Pétur Pan. Kris tók leitina að rétta kjólnum handa Söru Líf mjög alvarlega að ég hélt en í ljós kom að hann var að leita að 12 ára stærð handa mér hehe... Jám, gaman að því. Hvernig er það pjásur og aðrir vinir, eigum við ekkert að hittast í ágúst áður en skiptinemar yfirgefa landið? Æ það væri svo gaman! Látið í ykkur heyra :)

þriðjudagur, júní 21, 2005

Sigga:

Hvernig líst pjásum og pjásuvinum á að kíkja á kaffihús í kvöld eða annað kvöld?

þriðjudagur, júní 14, 2005

Þóra pjása:
Vildi bara þakka fyrir frábæra útileigu um síðustu helgi. Ég er ákaflega stollt af okkur að hafa labbað alla þessa leið! Svo var voða yndælt að hafa einhvern í Þórsmörk til að taka á móti manni eftir allt erfiðið (Jóhanna og Birkir).
Ragga sýndi mikla hörku og gafst ekki upp þrátt fyrir ógleði og Nanna þraukaði þrátt fyrir Kriss-leysi.
Finnst að við ættum endilega að endurtaka svona góða göngu við tækifæri. Það vantaði alveg Siggu pjásu, Egil pjásumaka, Óla pjásuling og Elínu pjásu.
Anyway, takk fyrir góða göngu og útileigu.

mánudagur, maí 23, 2005

Þóra pjása:
Sælar pjásur og velkomnar í sumarfrí!!!!! Húrra!
Nú er komið að því að skipuleggja hina árlegu sumargöngu pjásanna (héðan af árlegur viðburður). Göngum saman á Fimmvörðuháls! Getum farið af stað semi-snemma á laugardagsmorgni og tekið rútu á Skóga. Rútan heldur svo áfram með tjöldin okkar í Þórsmörk og við rölltum yfir. Svo grillum við saman í Þórsmörk um kvöldið og höfum það kósí. Hvernig líst ykku á???
Þá er það stóra spurningin: Hvenær eigum við að fara?
Sting upp á fyrstu helginni í júní? Hvað segiði um það?
Þetta verður mega-gaman!!!

fimmtudagur, apríl 07, 2005

Ragga:
Úff, allt of dauð síða! Ég og kisulóran erum að mastera bílinn okkar í nördagarði, skil á morgun. Fólk er víst alveg í fínheitunum að prenta á A3 blöð og gorma.. þokkalega fínt!! Við Þóra ætlum hins vegar að vera cheap á því og kaupa okkur í staðinn fullt af nýjum flottum fötum fyrir peninginn.

Þóra tók forskot á sæluna og er núna trítlandi um í glænýjum gallabuxum, tékkið á henni!!!

Pjásur og svo miklu miklu fleiri eru í sárum þessa dagana því Lína fína er farin til Costa Rica, Óli píka. Tékkið á heimasíðunni hennar: www.blog.central.is/elinbirna (Sigga setja tengil!)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?